Fréttir
13. september 2007

Frá höndum til hugar

Á grasflötinni framan við Hriflu
Jóhannes Geir Sigurgeirsson kynnir lokaritgerð sína frá Háskólanum á Bifröst á morgunfundi Samtaka atvinnulífsins föstudaginn 14. september frá kl. 8.30 - 10.00.

 Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins 6. hæð - í Borgartúni 35. Ritgerðin er lokaritgerð í Postgraduate Diplóma in Buissness; námi sem er 45 eininga nám og samsvarar MA námi í hag- og viðskiptatengdum greinum. Ritgerðin ber nafnið Frá höndum til hugar – breytingar í íslensku atvinnulífi 1995 – 2005, möguleg þróun til 2015. Í ritgerðinni er fjallað um þær miklu breytingar sem hafa átt sér stað í íslensku atvinnulífi 1995 – 2005. Staða Íslands sem þekkingar- og þjónustusamfélags er sett í alþjóðlegt samhengi og rýnt í þær miklu breytingar sem hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði á örfáum árum.

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri