12. september 2007
Skiptinemar í Singapúr vakna við jarðskjálfta
 |
| Myndin ef tekin af fréttavef Morgunblaðsins |
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir, nemandi við Háskólann á Bifröst sem er skiptinemi í Singapúr, vaknaði við jarðskjálftann sem reið yfir í morgun. Þrátt fyrir að skjálftinn hafi riðið yfir Indónesíu fannst hann víðar í nágrannalöndunum, meðal annars í Singapúr. Sigurbjörg sagði í viðtali við fréttavef Morgunblaðsins að mikil skelfing hafi myndast í borginni og íbúar þust út á götu enda eru þeim hamfarirnar á annan dag jóla 2004 enn í fersku minni.
Sigurbjörg býr ásamt öðrum skiptinema í íbúð á 15. hæð í 30 hæða háhýsi í Singapúr. Þar lék allt á reiðiskjálfi og ruddist fólk út úr öllum íbúðum og hljóp niður stigana enda þorðu menn ekki að taka áhættuna á að fara með lyftu niður.
Að sögn Sigurbjargar var fjöldi fólks á götum úti og erfitt að átta sig á því hvað væri að gerast en ekki er vitað um neitt tjón af völdum skjálftans í borginni. Auk Sigurbjargar stundar Hildur Guðjónsdóttir nemandi við Háskólann á Bifröst nú skiptinám í Singapúr.