11. september 2007
Vikulegar málstofur í Háskólanum á Bifröst
Á haustmisseri verða málstofur haldnar á þriðjudögum og hefjast kl. 15.30.
Í dag fjallar Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur um atburði 11. september, skugga hryðjuverka og skipan alþjóðamála.
Stefanía Óskarsdóttir lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði 1995 frá Purdue University í Bandaríkjunum. Frá 1996 til 2003 var hún stundakennari í stjórnmálafræði við H.Í. og sérfræðingur við Félagsvísindastofnun H.Í. frá 1997 til 2001. Frá 2003 hefur hún verið sjálfstætt starfandi. M.a. hefur hún unnið að ýmsum verkefnum fyrir ráðuneyti og tekið þátt í norrænu rannsóknarverkefni um þróun virks borgararéttar (active citizenship) í norrænum velferðarsamfélögum. Sl. ár hefur hún unnið ásamt öðrum að ritun bókar um sögu þingræðis á Íslandi sem Alþingi gefur út.
Málstofurnar, sem fara fram í Hriflu, eru öllum opnar.
Næsta málstofa verður þann 18. september og þá fjallar Björg Thorarensen, forseti lagadeildar Háskóla Íslands um stjórnarskrána og utanríkismál.