Fréttir
8. september 2007

Brautskráning stúdenta

Í dag voru brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst rúmlega 60 nemendur. 32 nemendur luku BS prófi í lagadeild, 16 BA prófi í félagsvísindadeild og 12 BS prófi í viðskiptadeild. Þá útskrifuðust 4 nemendur með meistaragráðu.

Við athöfnina lék Gréta Sigríður Einarsdóttir nemandi í Tónlistarskóla Borgarfjarðar einleik á píanó.

Verðlaun hlutu efstu nemendur í grunnnámi í hverri hinna þriggja deilda háskólans. Verðlaunin felast í því að viðkomandi nemendur öðlast sæti á Bifrastarlistanum yfir þá nemendur sem ná afbragðsárangri. Sá nemandi sem er í fyrsta sæti þarf ekki að greiða skólagjöld á næstu önn og nemendur í öðru og þriðja sæti fá 75% og 50% afslátt af skólagjöldum. Í félagsvísindadeild hlutu verðlaunin Kristján Hlynur Ingólfsson, Tryggvi Rafn Sigurbjarnarson og Harpa Björt Eggertsdóttir; í viðskiptadeild Hafdís Anna Bragadóttir, Sigríður Diljá Magnúsdóttir og jöfn í þriðja sæti voru Róbert Grétar Pétursson, Bryndís Reynisdóttir og Sigrún Halldóra Einarsdóttir og í lagadeild féllu verðlaunin í hlut Aldísar Olgu Jóhannesdóttur, Magnúsar R. Kristjánssonar og Hermanns Rúnars Helgasonar.

Þeir útskriftarnemendur sem bestum árangri náðu fengu viðurkenningu en það eru þau Guðmundur Ágúst Sæmundsson úr félagsvísindadeild, Alda Pétursdóttir úr viðskiptadeild og Bryndís Ósk Jónsdóttir úr lagadeild. Viðurkenningu fyrir hæstu einkunn meistaranema hlaut Guðrún Arndís Jónsdóttir og hlaut hún jafnframt viðurkenningu fyrir bestu meistararitgerðina.

Að vanda veitti Samband íslenskra samvinnufélaga 150.000 króna peningaverðlaun fyrir hæstu einkunn í grunnnámi og var það Guðmundur Ágúst Sæmundsson sem þau hlaut. Birna Bjarnadóttir ritari stjórnar SÍS afhenti Guðmundi verðlaunin.

  

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri