4. september 2007
Háskólahátíð á laugardag
 |
| Úr háskólaþorpinu á Bifröst |
Háskólahátíð að hausti verður haldin í Háskólanum á Bifröst laugardaginn 8. september næstkomandi. Athöfnin hefst klukkan 14.00. Þá verða útskrifaðir 60 nemendur með BA og BS gráður; 16 úr félagsvísindadeild, 32 úr lagadeild og 12 úr viðskiptadeild. Þá munu 4 nemendur útskrifast úr meistaranámi. Við athöfnina verður flutt tónlist og verðlaun veitt fyrir góðan námsárangur. Dr.
Ágúst Einarsson rektor flytur hátíðarræðu.
Nemendur Háskólans á Bifröst hafa aldrei verið fleiri en þeir eru nú á haustdögum eða um 1100 talsins. Umsóknir um skólavist fyrir skólaárið 2007 – 2008 voru um 900 talsins og þar af fengu 600 skólavist.