3. september 2007
Skólasetning í Háskólanum á Bifröst
 |
| Þétt setinn bekkurinn í Hriflu | |
|
Skólaárið 2007 - 2008 hófst í morgun með formlegri skólasetningu. Um er að ræða 90. starfsár skólans en forveri hans Samvinnuskólinn hóf starfsemi sína í Reykjavík árið 1918. Skólinn flutti að Bifröst árið 1955. Árið 1990 var nafni hans breytt í Samvinnuháskólinn, síðar Viðskiptaháskólinn á Bifröst og loks Háskólinn á Bifröst.
Dr. Ágúst Einarsson, rektor, lagði þó á það áherslu í ávarpi sínu að um einn og sama skólann væri að ræða. Hann bauð nemendur velkomna og hvatti þá til að nota námstímann vel. Í máli hans kom fram að í 90 ára sögu skólans hafi ávallt verið lögð áhersla á að mennta fólk til forystustarfa í íslensku samfélagi og að svo er enn. Rektor greindi frá Bifrastarlistanum svokallaða en það er nýr listi yfir þá nemendur sem njóta afsláttar á skólagjöldum við Háskólann á Bifröst eða hljóta útskriftarverðlaun vegna frábærs árangurs í námi. Þá ræddi Ágúst nokkuð um kosti samfélagsins á Bifröst sem m.a. felast í öflugu félagslífi og góðu aðgengi að leik- og grunnskólum en nú búa um 700 manns í háskólaþorpinu.