Fréttir
31. ágúst 2007

Svæðisþing tónlistarskóla á Vesturlandi og Vestfjörðum

Hrifla er eftirsótt til ráðstefnuhalds
Í dag fer fram fimmta svæðisþing tónlistarskóla á Vesturlandi og Vestfjörðum sem að þessu sinni er haldið í Hriflu, hátíðasal Háskólans á Bifröst.

Meðal frummælenda á þinginu er Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst. Ágúst kynnir „Vegvísi fyrir listfræðslu“, niðurstöðu heimsráðstefnu um listfræðslu sem fram fór í Lissabon 6.-9. mars 2006. Vegvísirinn eða Road Map for Arts Education er gefinn út af UNESCO og fjallar um þau tækifæri sem felast í listfræðslu til að mæta hugmyndum og kröfum um mikilvægi sköpunarkrafts og menningar á 21. öldinni.

Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð flytja erindi og lýsa skoðunum sínum á inntaki Vegvísisins og að lokum verða  pallborðsumræður um efni skýrslunnar.

Á þinginu verður jafnframt fjallað um endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla, tónlistarkennslu í Minnesota o.fl.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri