27. ágúst 2007
900 umsóknir um skólavist
 |
| Um 700 íbúar eru í háskólaþorpinu |
Aldrei hafa jafnmargar umsóknir borist um skólavist við Háskólann á Bifröst eins og fyrir komandi skólaár. 900 manns sóttu um skólavist og 600 fengu inngöngu í skólann.
Háskólinn á Bifröst verður 89 ára á þessu ári en hann verður settur mánudaginn 3. september. Í skólanum er kennd viðskiptafræði, lögfræði, heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði í grunnnámi og fjölbreytt meistaranám í sex námsleiðum. Þar er og frumgreinadeild og aðrar styttri og lengri námsbrautir eins og Máttur kvenna I og II, Rekstur smærri fyrirtækja og verslunarstjórnarnám.
Nú stunda um 1100 manns nám við Háskólann á Bifröst og hafa nemendur aldrei verið fleiri í tæplega 90 ára sögu skólans. Þar af eru 250 nemendur í meistaranámi. Í háskólaþorpinu á Bifröst búa um 700 manns og er Bifröst með fjölmennari byggðakjörnum á landsbyggðinni.
Háskólinn á Bifröst var rekinn með hagnaði fyrstu sex mánuði þessa árs. Að sögn dr. Ágústar Einarssonar rektors er mikill hugur í Bifrestingum á nýju skólaári og hlakka starfsfólk og nemendur til fjölbreyttasta starfsárs í sögu skólans. Í haust verða m.a. tónleikar, málverkasýningar, opnir fyrirlestrar, ráðstefnur og kvikmyndasýningar á Bifröst.