22. ágúst 2007
Fjölmargir gistikennarar á sumarönn meistaranáms
Fjölmargir gistikennarar, erlendir og innlendir, hafa annast kennslu í meistaranáminu á sumarönn. Nýverið héldu af landi brott þeir dr. Enrique Jaen, og dr. Eric Stubbs en þeir fræddu meistaranema í alþjóðlegri bankastarfsemi og fjármálum, um eignastýringu og einkabankaþjónustu.
Enrique Jaen er fjárfestingarráðgjafi í einkabankaþjónustu fjárfestingarbankans Bear Stearns í New York. Hann starfar fyrst og fremst við að útbúa ýmiskonar stærðfræði- og tölfræðileg líkön sem geta nýst viðskiptavinum bankans í að taka stefnumiðaðar fjárfestingarákvarðanir, finna hagstæðustu eigna- og skuldasamsetningu og fylgjast með áhættu eignasafna sinna . Auk þess aðstoðar hann við stjórnun eignasafna sem samanstanda af kauphallarvísitölusjóðum (ETFs).
Dr. Eric Stubbs starfar sem sérfræðingur og framkvæmdastjóri í eignastýringu fjárfestingabankans Bear Stearns. Eric er með meira en 20 ára reynslu úr bankaheiminum, sérstaklega á sviði eigna- og áhættustýringar. Samhliða bankastörfum hefur hann verið virkur í akademískum störfum bæði sem kennari við Harvard University, Rutgers University og University of Toronto, auk þess sem hann er höfundur 3ja bóka á sínu fræðasviði og hefur skrifað og birt fjöldann allan af fræðigreinum á sviði fjárfestinga og áhættustýringar.
Þá kenndi dr. Francis Gupta eigindlegar rannsóknaraðferðir í fjármálum á meistarastigi.
Francis hóf störf hjá Dow Jones Indexes árið 2003 og starfar í dag sem framkvæmdastjóri og yfirumsjónarmaður rannsókna og áhættustýringar.