21. ágúst 2007
Dr. Ágúst Einarsson prófessor við Háskólann á Bifröst
Á fundi stjórnar Háskólans á Bifröst 20. ágúst var dr. Ágúst Einarsson, rektor skólans, ráðinn prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst og mun hann gegna þeirri stöðu samhliða rektorsstarfinu. Aðspurður sagði Ágúst að honum þætti mjög vænt um þennan heiður. „Ég hef kennt nokkuð á þessu ári og mun kenna aðeins á næsta ári en mitt aðalstarf er vitaskuld rektorsstarfið en ég mjög gaman af því að kenna og rannsaka“, sagði Ágúst. Ágúst var fyrst skipaður prófessor við Háskóla Íslands árið 1990 og hefur gefið út margar bækur og birt fjölmargar greinar auk þess að hafa sinnt margvíslegum störfum í íslensku samfélagi undanfarna áratugi.