Fréttir
21. ágúst 2007

Ný reglugerð Háskólans á Bifröst

Á fundi stjórnar Háskólans á Bifröst í gær 20. ágúst var samþykkt ný reglugerð fyrir skólann. Hina nýju reglugerð má nálgast hér. Unnið hefur verið að hinni nýju reglugerð undir forystu rektors undanfarna mánuði og voru drög að reglugerðinni kynnt í háskólaráði. Meginbreyting er einföldun og stytting eða um 35% að umfangi.

Ekki eru miklar efnisbreytingar í nýju drögunum en þó er sveigjanleiki aukinn svo og skýrleiki. Hér má sjá helstu efnisbreytingar. Reglugerðin gildir frá og með 21. ágúst 2007.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri