15. ágúst 2007
Kvikmyndahátíð á sunnudag
 |
| Sýningar verða í Hriflu |
Sunnudaginn 19. ágúst verður kvikmyndahátíð í Háskólanum á Bifröst. Hátíðin er á vegum félagsvísindadeildar og haldin í tengslum við námskeið í kvikmyndafræði sem Björn Norðfjörð kennir nú við skólann.
Myndirnar sem sýndar verða voru hluti af dagskrá kvikmyndahátíðar í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði um hvítasunnuna. Um er að ræða íslenskar heimildamyndir sem uppfylla þurftu þrjú skilyrði til þess að komast á Skjaldborgarhátíðina; þ.e. að vera íslenskar, ekki leiknar og helst ekki hafa kostað meira en 350 milljónir. Á Skjaldborgarhátíðinni voru sýndar 27 myndir á tveimur dögum en úrval þeirra verður sýnt á Bifröst.
Sýningar á Bifröst verða í Hriflu. Þær hefjast klukkan 16.00 sunnudaginn 19. ágúst og standa fram eftir kvöldi. Dagskrá hátíðarinnar verður nánar kynnt á föstudag.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.