20. ágúst 2007
Síðustu forvöð að sækja um nám í félagsvísindadeild
Umsóknarfrestur um grunnnám við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst rennur út í dag.
 |
| Háskólatorg, Kaffi Bifröst |
Boðið er upp á nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði til BA gráðu en sú námsleið er einstök hér á landi.
Nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS) er byggt upp að breskri fyrirmynd, en samfléttað nám af þessu tagi hefur rutt sér til rúms í fleiri löndum á undanförnum árum. HHS er undirstöðugott og fjölbreytt nám og nýtist bæði sem gott vegarnesti að margvíslegum störfum í samfélaginu og sem heppilegt grunnnám fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám á einhverju sviði hug- og félagsvísinda. Fyrstu nemendurnir hófu nám í HHS haustið 2005 og fyrstu nemendurnir úr þeim hópi útskrifuðust vorið 2007.
Nánari upplýsingar veitir dr. Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, sími 433 3022/663 4664; netfang jonolafs@bifrost.is
Upplýsingar um umsóknir má nálgast hér.