8. ágúst 2007
Frumgreinadeild í fjarnámi
Þann 13. ágúst nk. mun fyrsti hópur fjarnema hefja nám við frumgreinadeild Háskólans á Bifröst. Alls voru 50 nemar innritaðir í fjarnámið en frestur til að skila inn umsóknum rann út 10. júní sl. Mikill áhugi var fyrir þessari nýju námsleið en tæplega 100 umsóknir bárust.
Á vordögum opnaði Háskólinn á Bifröst útibú á Austurlandi og á Vestfjörðum. Í kjölfarið barst nokkur fjöldi umsókna frá þessum landshlutum. Flestir nemendur koma frá landsbyggðinni en einnig eru nemar frá höfuðborgarsvæðinu.
Nám við frumgreinadeildina er fyrst og fremst undirbúningur fyrir háskólanám við Háskólann á Bifröst. Fjarnemar geta valið á milli þess að stunda fullt nám í eitt ár eða hálft nám með vinnu og ljúka námi á tveimur árum. Skipting nema á milli námsleiða er nokkuð jöfn. Á skólaárinu eru sex vinnuhelgar sem notaðar verða í ýmsa verkefnavinnu og ekki síst til að styrkja tengsl milli nema.