Fréttir
8. ágúst 2007

Hreyfing á kennurum

Háskólatorg; Kaffi Bifröst
Nokkrar breytingar hafa orðið á störfum kennara skólans undanfarið. Bryndís Hlöðversdóttir hefur hlotið framgang í stöðu dósents og Einar Karl Hallvarðsson hefur sömuleiðis hlotið framgang í stöðu dósents og verður í fullu starfi í lagadeild. Dr. Herdís Þorgeirsdóttir mun eingöngu sinna rannsóknum við skólann og hefur ekki lengur kennslu- og stjórnunarskyldur í lagadeild. Njörður Sigurjónsson, sem hefur kennt í menningarstjórnun, hefur verið ráðinn í 50% lektorsstöðu í félagsvísindadeild en hann ver doktorsritgerð sína á næsta ári. Ásta Dís Óladóttir var ráðin fyrr á þessu ári í 50% dósentsstöðu í viðskiptadeild en hún starfar m.a. við Copenhagen Business School og lýkur doktorsprófi á næsta ári. Jón Þrándur Stefánsson Ph.D., dósent við Otaru University of Commerce í Japan, kemur  í hlutastöðu dósents í viðskiptadeild hér í a.m.k. eitt ár. Vífill Karlsson í félagsvísindadeild hefur minnkað starfshlutfall sitt tímabundið og mun vinna að doktorsritgerð sinni. Eiríkur Bergmann Einarsson í félagsvísindadeild mun sömuleiðis frá áramótun vera með minna starfshlutfall á meðan hann vinnur að sinni doktorsritgerð. Birgir G. Magnússon í lagadeild og dr. Ian Watson í félagsvísindadeild munu láta af föstu starfi að eigin ósk og er þeim þakkað kærlega fyrir vel unnin störf.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri