Fréttir
10. ágúst 2007

Fjarnám viðskiptadeildar hafið

Lífsorkan, verk Ásmundar Sveinssonar, var á árum áður tákn skólans
Um 70 nemendur hófu nú í vikunni fjarnám við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst.  Hópurinn mun dvelja á Bifröst dagana 10. og 11. ágúst en þá verður fyrsta svokallaða vinnuhelgin í náminu. Vinnuhelgar eru að jafnaði þrjár til fjórar á hverri önn og eru þær notaðar til verkefnavinnu, hópvinnu og samskiptaþjálfunar. Gist er í Reykholti.

Fjarnámið er skipulagt sem hlutanám og fer fram með hálfum hraða miðað við reglulegt nám. Hvert námskeið er 3 til 4 einingar, hver námsgrein tekur um 4 til 5 vikur sem lýkur annað hvort með prófi eða lokaverkefni.

Verkefni eru unnin á námskjá, menntaveitu Háskólans á Bifröst,  og eru einstaklings-, para- eða hópverkefni. Verkefnin geta tekið allt frá nokkrum klukkustundum á vinnuhelgum upp í nokkrar vikur í vinnslu, allt eftir umfangi og aðstæðum.

Nemendur geta kallað fram fyrirlestra á námskjánum þegar þeim hentar og eins oft og þeir vilja óháð stað og stund. Þá er sérstakur umræðuhópur í hverri grein fyrir sig. Þar geta nemendur varpað fram fyrirspurnum um efni fyrirlestra og leitað svara og kennarar stýra umræðum um viðkomandi námsvið.

Alls munu tæplega 200 manns leggja stund á fjarnám við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst  á skólaárinu sem nú er að hefjast.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri