Dr. Manuel London er aðstoðarrektor viðskiptaskólans; stjórnandi rannsóknarstofnunar í mannauðsstjórnun og prófessor í stjórnun við Stony Brook háskólann í New York. Eiginkona hans Marilyn London kennir við School of Professional Development í Stony Brook háskólanum.
Námskeiðið sem þau kenna á Bifröst nefnist
Corporate Governance, Ethics and International Human Resource Management og er kennt í báðum námsleiðum meistaranáms í viðskiptafræði, þ.e. International Banking and Finance annars vegar og International Business hins vegar. Manuel hefur skrifað fjölda bóka og fræðigreina og má finna nánari upplýsingar um störf hans á heimasíðu hans.