2. ágúst 2007
Háskólinn á Bifröst og Nýsir hf. gera samning um sölu og leigu fasteigna
 |
| Háskólaþorpið á Bifröst |
Fimmtudaginn 2. ágúst kl. 17 verður skrifað undir samning Háskólans á Bifröst og Nýsis hf. um endurfjármögnun Háskólans á Bifröst og kaup Nýsis á húseignum skólans á Bifröst. Þetta er í fyrsta sinn hérlendis sem háskóli gerir slíkan samning um sölu og leigu allra fasteigna sinna.
Nýsir hf. er þekkt félag á sviði eignarhalds og reksturs fasteigna. Félagið á og rekur fjölda skólabygginga á Íslandi og í Bretlandi. Nýsir hf. mun leigja Háskólanum allar fasteignirnar og hefur skólinn endurkauparétt á 5 ára fresti. Þetta form fjármögnunar og eignarhalds er sífellt að verða algengara hérlendis, m.a. í skólarekstri. Jafnframt verður ráðist í endurbætur og viðhald á elstu húsum skólans fyrir á annað hundrað milljónir króna en þau eru mikilvægur þáttur í menningar- og menntasögu Íslands.
Yfir 700 manns búa í háskólaþorpinu á Bifröst og styrkir þessi samningur búsetu þeirra svo og fjárhagsstöðu skólans sem verður 90 ára á næsta ári. Háskólinn á Bifröst og Nýsir hf. eru í miklum vexti og þessi samningur undirstrikar vilja og möguleika á frekari uppbyggingu báðum aðilum til heilla. Nú eru yfir 1.000 manns í námi í Háskólanum á Bifröst og hefur fjölgað mikið á þessu ári.