23. ágúst 2007
Leikskólinn Hraunborg á Bifröst auglýsir eftir starfsfólki
 |
| Háskólaþorpið - leikskólinn Hraunborg í baksýn |
Leikskólinn Hraunborg á Bifröst auglýsir eftir skemmtilegu og jákvæðu fólki til kennslustarfa í vetur. Á Hraunborg er unnið eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.
Einnig vantar duglegan kokk sem kann að elda hollan mat fyrir kröftuga krakka, húsmóður sem getur sinnt ræstingum, innkaupum og almennum húsvarðarstörfum og ritara í hlutastarf.
Aðstoðarkennarastörf frá kl.15.00 -17.15 gætu einnig verið í boði.
(tilvalið fyrir nemendur Háskólans)
Hæfniskröfur: Jákvætt hugarfar í garð barna, fjölskyldna og samstarfsfólks og vilji til að vinna samkvæmt starfsreglum Hjallastefnunnar www.hjalli.is
Hraunborg er rekinn af Hjallastefnunni samkvæmt þjónustusamningi við Borgarbyggð. Leikskólakjarnar eru kynjaskiptir og eingöngu er notaður opinn efniviður til leiks og náms. Félagsfærni, einstaklingsþjálfun, ögun og kærleikur eru orð sem eru lýsandi fyrir innra starf í Hjallastefnuskólum.
Við bjóðum mannbætandi, krefjandi og skemmtilegt starf þar sem lögð er áhersla á að allir fái að njóta verðleika sinna. Hjallastefnan greiðir þeim bílastyrk sem þurfa að koma um langan veg til vinnu.
Upplýsingar veitir Anna María Sverrisdóttir, leikskólastjóri í síma 6935303 e.h. Einnig má senda póst á annamaria@hjalli.is eða hraunborg@hjalli.is Upplýsingar um skólann og Hjallastefnuna má finna á heimasíðu Hjallastefnunnar www.hjalli.is og sækja má um starf á síðu skólans www.hjalli.is/hraunborg