29. júní 2007
Kennarar frá Lyon í kynnisferð á Bifröst
 |
| Franskir kennarar heimsóttu Bifröst á einum fegursta degi sumarsins |
Fransk-íslenska verslunarráðið fór þess á leit við skólayfirvöld á Bifröst að tekið yrði á móti hópi af framhalds- og háskólakennurum frá borginni Lyon. Þau Kolfinna Jóhannesdóttir, sérfræðingur á Rannsóknamiðstöð og Stefán Kalmansson, aðjúnkt í viðskiptadeild, tóku á móti hópnum og greindu frá starfsemi Háskólans á Bifröst. Jafnframt sögðu þau frá íslenska menntakerfinu og svöruðu fyrirspurnum gestanna. Að lokinni velheppnaðri heimsókn á Bifröst gengu Frakkarnir á Grábrók í blíðskaparveðri.