29. júní 2007
Háskólinn á Bifröst opnar útibú á Ísafirði
 |
| Peter Weiss er lengst til vinstri, þá ónefndur gestur, Rebekka Rán markaðsstjóri og Hulda Ingibjörg verkefnastjóri símenntunar við Háskólann á Bifröst, Martha Lilja og Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði. |
Nýtt útibú Háskólans á Bifröst var opnað á Ísafirði fimmtudaginn 28 júní sl. Útibúið er til húsa í Suðurgötu 12, í húsnæði Háskólaseturs Vestfjarða. Forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða er dr. Peter Weiss en Martha Lilja Olsen, kennslustjóri háskólasetursins mun sjá um útibú Háskólans á Bifröst þar vestra. Martha Lilja þekkir vel til skólastarfs á Bifröst en hún útskrifaðist með MA gráðu í Evrópufræðum frá Háskólanum á Bifröst árið 2006.
Með tilkomu útibúsins á Ísafirði verður Vestfirðingum gert auðveldara að kynna sér starfsemi og stunda nám við Háskólann á Bifröst. Þar verða veittar upplýsingar um nám og kennslu og er þessi þjónusta ætluð nýjum nemendum sem og þeim sem þegar stunda þar ýmist stað- eða fjarnám. Þann 7. júní síðastliðinn var opnað sambærilegt útibú á Egilsstöðum í tengslum við Þekkingarmiðstöð Austurlands og unnið er að opnun fleiri útibúa.
Nú stunda á annað hundrað manns fjarnám til BS gráðu í viðskiptafræði við háskólann á Bifröst auk þess sem fimm af sex námsleiðum í meistaranámi eru kenndar í blöndu af fjar- og staðnámi. Þá hefur, í símenntunardeild skólans, verið boðið upp á tvö námskeið í fjarnámi: Mátt kvenna sem er þriggja mánaða nám fyrir konur; einkum þær sem huga á sjálfstæðan atvinnurekstur og diplómanám í verslunarstjórnun. Haustið 2007 verður í fyrsta sinn boðið upp á fjarnám við frumgreinadeild skólans og hefur sú nýbreytni vakið mikla athygli og fjöldi umsókna borist. Þá býður Háskólinn á Bifröst nú í haust í fyrsta sinn upp á rekstrarnám fyrir rekstraraðila smærri fyrirtækja, svokallað RSF. Námið má stunda með vinnu og það nýtist frá fyrsta degi í rekstri fyrirtækja.
Útibú Háskólans á Bifröst í Suðurgötu 12 á Ísafirði verður opið alla fimmtudaga frá klukkan 15.00 – 17.00.