Fréttir
27. júní 2007

Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga styrkir Háskólann á Bifröst

Þórólfur Gíslason og Ágúst Einarsson
Miðvikudaginn 27. júní 2007, tók dr. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, við styrk til skólans að upphæð 20 milljónir króna. Styrkurinn kemur frá Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga. Hann er veittur með þá miklu uppbyggingu sem á sér stað á Bifröst í huga sem og farsæl tengsl skólans og samvinnuhreyfingarinnar um árabil. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga afhenti styrkinn og flutti kveðju stjórnar eignarhaldsfélagsins. Í máli hans kom fram að á meðal markmiða stjórnarinnar er að styrkja og efla  menningar- og félagslega starfsemi í landinu. Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga vill sýna stórhug í verki með því að styrkja Háskólann á Bifröst með svo myndarlegu fjárframlagi og væntir þess að það verði öðrum fyrirtækjum hvatning til þess að sýna menntastofnunum stuðning með svipuðum hætti. 

Dr. Ágúst Einarsson flutti þakkir fyrir hönd Háskólans á Bifröst og tók undir þá ósk Þórólfs að gjöfin mætti verða öðrum fyrirtækjum hvatning til þess að styrkja menntun í landinu. Andrés Magnússon, varaformaður stjórnar Háskólans á Bifröst, flutti þakkir stjórnar og kvaðst líta á styrkveitinguna sem viðurkenningu fyrir það góða starf sem nú er unnið í Háskólanum á Bifröst.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri