Fréttir
26. júní 2007

Þríþrautarkeppnin Hroki

Keppendur létu hráslagalegt veður ekki hafa áhrif á keppnisskapið og gleðina
Þríþrautarkeppnin Hroki verður haldin öðru sinni fimmtudaginn 5. júlí næstkomandi en hún hóf göngu sína síðastliðið sumar.  Keppt er í þriggja manna liðum og keppnisgreinar eru 3 km hjólreiðar, 2,5 km hlaup og 100 m Hreðavatnssund. Sérhver liðsmaður keppir í öllum greinunum þremur.

Lagt verður af stað hjólandi frá hringtorginu við Kringlu og hjólað upp í Jafnaskarðsskóg. Þá verður hlaupið tilbaka og endað á sundspretti í Hreðavatni. Að lokinni keppni munu meðlimir skólafélagsins sjá um að grilla ofan í svanga keppendur og gesti. Íbúar háskólaþorpsins og aðrir velunnarar Bifrastar eru hvattir til að setja saman lið og taka þátt í keppninni.

Nákvæm tímasetning verður tilkynnt síðar. Allar nánari upplýsingar veitir Hlédís Sveinsdóttir; hlediss@bifrost.is og hún tekur jafnframt við skráningu liða í keppnina.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri