25. júní 2007
Gönguferð á Baulu í dag - sláist í för með göngumönnum!
 |
| Útsýni af Baulu er stórfenglegt |
Nokkrir starfsmenn Háskólans á Bifröst gengu á Eiríksjökul um Jónsmessu síðastliðið sumar eftir drjúgan undirbúning, jafnt andlegan sem líkamlegan. Þeir hafa nú ákveðið, svotil fyrirvaralaust, að halda í aðra Jónsmessugöngu nú síðdegis og að þessu sinni er það fjallið Baula sem klífa skal.
Baula er keilumyndað fjall úr líparíti, 934m á hæð. Hún er ekkert unglamb, myndaðist í troðgosi fyrir um það bil þremur milljónum ára. Baula var fyrst klifin árið 1851 að því er best er vitað og þótti þá mikið afrek.
Þórir Páll Guðjónsson mun leiða göngumenn í dag en hann er vanur fjallagarpur og verður þetta þriðja ferð hans á Baulu. Lagt verður af stað frá háskólanum klukkan 16:00 og ráðgert er að gangan taki 5 - 6 tíma. Nánari upplýsingar um ferðina má fá hjá Þorgerði Gunnarsdóttur; thorgerdurg@bifrost.is