Fréttir
22. júní 2007

Nýtt ráðstefnurit frá Háskólaútgáfunni

 Í nóvember 2006 stóð Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um breytta stöðu í utanríkismálum Íslands með áherslu á tengsl við önnur Evrópulönd. Markmiðið var að vekja athygli á þeim víðfeðmu rannsóknum sem fara fram á sviði Evrópufræða í íslensku háskólasamfélagi og var því fræðimönnum af ýmsum sviðum boðið að kynna verk sín. Afrakstur ráðstefnunnar er settur fram í fimm megin hlutum í ráðstefnuriti sem ber heitið: Ný staða Íslands í utanríkismálum. Tengsl við önnur Evrópulönd.  Í fyrsta hluta eru inngangserindi, í öðrum eru ýmis sjónarmið hagfræðinnar sett fram, í þeim þriðja ræða stjórnmála- og sagnfræðingar málefni þeim tengd, í þeim fjórða kynna norrænir fræðimenn reynslu landa sinni af fullri aðild að Evrópusambandinu og að lokum eru skráðar pallborðsumræður sem fulltrúar vinnumarkaðarins tóku þátt í.

 

Silja Bára Ómarsdóttir, ritstjóri verksins,  er forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands og aðjúnkt við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands. Kafla í bókinni eiga: Valgerður Sverrisdóttir, Einar Benediktsson, Róbert R. Spanó, Ágúst Einarsson, Gylfi Zoega, Lilja Mósesdóttir, Jónas H.  Haralz, Þorvaldur Gylfason, Baldur Þórhallsson, Guðmundur Hálfdánarson, Úlfar Hauksson, Valur Ingimundarson, Harry Flam og Markus Lahtinen.

Útgefandi er Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri