Fréttir
21. júní 2007

Kaffi Bifröst

Þau Heiðveig María Einarsdóttir og Björn Rósberg Grétarsson sem annast hafa rekstur Kaffi Bifrastar undanfarin ár hafa nú látið af störfum. Skólinn tók yfir rekstur kaffihússins nú fyrst um sinn og í framhaldi af því reyndist nauðsynlegt að gera breytingar á afgreiðslutíma og loka kaffihúsinu um helgar. Eftir sem áður er boðið upp á rétt dagsins í hádeginu, matseðil og ýmislegt góðgæti. Nú stendur yfir ljósmyndasýning á kaffihúsinu en þar sýna tveir nemendur Háskólans á Bifröst myndir frá Indlandi.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri