Fréttir
21. júní 2007

Myndir frá Indlandi

Hlédís og Sigrún dvöldu á Indlandi frá áramótum og fram í maí. Þær stunduðu nám við Christ College í Bangalore sem er fimmta stærsta borg Indlands. Myndirnar á sýningunni eru teknar víða í Indlandi enda voru stúlkurnar duglegar að ferðast hvenær sem færi gafst og luku reyndar dvölinni með mánaðarreisu um landið.

Sýningin er athyglisverð og gefur góða innsýn í framandi menningarheim og fjölskrúðugt mannlíf Indverja. Vandaðir skýringartextar fylgja hverri mynd og eykur það gildi sýningarinnar til muna. Hún stendur yfir til loka júnímánaðar a.m.k. en kaffihúsið er opið virka daga frá klukkan 8 til 21.

Sýningin er sölusýning og er verð myndanna 3500 krónur; þ.e. fyrir kostnaði við prentun og innrömmun. Þeim sem áhuga hafa á að eignast mynd af sýningunni er bent á að hafa samband við þær Sigrúnu eða Hlédísi;  sigrunosk@bifrost.is eða hlediss@bifrost.is.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri