Fréttir
19. júní 2007

Vífill Karlsson kynnir rannsóknir sínar á ráðstefnu í Brussel

Vífill Karlsson tók þátt í ráðstefnu sem haldin var við háskóla í Brussel, The Free University of Brüsselles, dagana 1.-2. júní sl.  Á þessari ráðstefnu voru kynntar nýjungar í gerð hagfræðilíkana á sviði borgar- og svæðahagfræði.  Vífill kynnti niðurstöður tveggja greina sem eru hluti af doktorsverkefni hans.  Fyrri greinin fjallar um áhrif samgöngubóta á fasteignaverð á Íslandi og sú seinni um aukið vægi borgarinnar vegna breyttra atvinnuhátta á Íslandi.  Þeim var vel tekið og fengu þær góða gagnrýni.  Þátttakendur komu víða að en þeir voru nánast úr öllum heimsálfum.  Heiðursfyrirlesari ráðstefnunnar var dr. Jeffrey Hewings frá Háskóla Illinois.  Hann fjallaði um öldrun og búferlaflutninga innan  Bandríkjanna. 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri