Fréttir
18. júní 2007

Heimasíða Hollvinasamtaka Bifrastar

Ný heimasíða Hollvinasamtaka Bifrastar hefur verið opnuð.  Henni er ætlað að vera vettvangur samskipta og upplýsingamiðlunar þar sem meðal annars er að finna nöfn og útskriftarár allra núlifandi nemenda skólans frá upphafi.  Á síðunni er áformað að birta fréttir af félagsstarfinu og aðrar upplýsingar og tilkynningar sem eiga  erindi til hollvina skólans hverju sinni.  Umræðuþráður er á síðunni þar sem hollvinum gefst kostur á að ræða málin og skiptast á skoðunum og eru félagar hvattir til að nota þann vettvang.  Sérstaklega er óskað eftir að hollvinir skrái netfangið sitt inn á síðuna til að auðvelda samskiptin í framtíðinni. Heimasíðan er ekki fullbúin en unnið verður áfram að endurbótum á henni á næstu vikum og mánuðum. Merki hennar hannaði Rebekka Rán Samper. Allar ábendingar um lagfæringar og viðbætur eru vel þegnar og má senda hugmyndir um það á netfangið thorir@bifrost.is

Fréttabréf Hollvinasamtakanna hefur verið póstlagt til hollvina og mun berast þeim í vikunni. 

Heimasíðuna má nálgast hér

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri