16. júní 2007
Rektor Háskólans á Bifröst flutti fyrirlestur á vísindaráðstefnu í Tyrklandi
Dr. Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst flutti lykilfyrirlestur (Keynote) á vísindaráðstefnu í Tyrklandi í þessari viku. Ráðstefnan, International Conference on Business Management and Economics, var haldin af Yasar University í Izmir. Dr. Ágúst var í boði hins tyrkneska háskóla og var meðal fjögurra aðalræðumanna sem auk hans voru prófessorar frá Indlandi, Bandaríkjunum og Austuríki. Alls voru flutt 350 erindi af vísindamönnum frá 40 þjóðlöndum og er þetta í þriðja sinn sem ráðstefnan er haldin.