16. júní 2007
Dr. Lilja Mósesdóttir valin í hóp framúrskarandi fræðimanna
Nýlega var dr. Lilja Mósesdóttir, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst valin af Jean Monnet Centre of Excellence í þriggja manna hóp framúrskarandi fræðimanna til að taka þátt í sérstakri námsstefnu á ráðstefnunni Engendering Politics and Policies. International and comparative perspectives and challenges. Um 80 fræðimenn frá m.a. Evrópu og Norður-Ameríku sóttust eftir að komast í þennan hóp. Ráðstefnan verður haldin 21.-22. júní n.k. í Manchester, Bretlandi og þar mun Lilja kynna niðurstöður rannsóknar sinnar á því hvers vegna framþróun þekkingarsamfélagsins í Evrópu tryggir ekki kynjajöfnuð eins og Evrópusambandið stefnir að.
Á undanförnum árum hefur Lilja tekið þátt í nokkrum evrópskum og norrænum verkefnum bæði sem verkefnisstjóri og fræðimaður. Nýlega lauk t.d. þriggja ára evrópsku rannsóknarverkefni sem styrkt var af ESB um þekkingarsamfélagið og var Lilja verkefnisstjóri þess. Rannsóknir Lilju hafa flestar verið á sviði vinnumarkaðshagfræði og hefur hún birt niðurstöður rannsókna sinna í alþjóðlegum bókum og tímaritum. Lilja er menntuð í Bretlandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi og hefur auk þess starfað sem sérfræðingur og háskólakennari í Svíþjóð og á Grænlandi og Íslandi. Síðastliðin 10 ár hefur Lilja tekið þátt í starfi sérfræðingahóps framkvæmdastjórnar ESB í atvinnu-, jafnréttis-, og félagsmálum.