14. júní 2007
Framhaldsnámskeið - Máttur kvenna II
 |
| Útskriftarhópur úr Mætti kvenna |
Námið er fjarnám sem fer fram í gegnum fjarnámsvef Háskólans á Bifröst.
Það hefst 31. ágúst og er opið þeim sem hafa áður lokið Mætti kvenna I.
Þátttökugjald er 85.000 krónur. Innifalið í verðinu er kennsla í fjarnámi, 2 vinnuhelgar, gisting og matur.
Markmiðið með þessu námskeiði er að auka en frekar hæfni og þekkingu kvenna í atvinnurekstri. Auk þess að undirbúa nemendur fyrir almennan rekstur smærri fyrirtækja, er lögð áhersla á að viðhalda og efla tengslanet kvenna.
Sem fyrr eru kennarar á námskeiðinu sérfræðingar á sínu sviði. Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar í Mætti kvenna II:
Bókhald II
Enska
Skattar
Rekstrarhagfræði
Samningatækni
Starfsmannastjórnun
Námið tekur alls 12 vikur í fjarnámi en það hefst og því lýkur með sameiginlegum vinnuhelgum á Bifröst. Á fyrri vinnuhelginni er áhersla á nýsköpun og frumkvöðla. Fyrirkomulag fjarnámsins verður með þeim hætti að sendir verða út fjórir fyrirlestrar í hverri grein, auk þess sem skila þarf verkefnum. Konunar geta hlustað á fyrirlestrana þegar þeim hentar og þar sem þeim hentar. Náminu lýkur svo með annarri vinnuhelgi og útskrift á Bifröst. Gera má ráð fyrir að verja þurfi u.þ.b. 8-9 klst. á viku í námið.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri símenntunar Hulda I. Rafnarsdóttir; netfang: hulda@bifrost.is