Fréttir
14. júní 2007

Afsláttur af vallargjöldum Glanna

Starfsemi golfklúbbsins Glanna lofar góðu
Nýverið gerði Háskólinn á Bifröst samkomulag við nýja eigendur að golfvellinum Glanna um að hlutur Háskólans á Bifröst  yrði greiddur með afslætti til nemenda og starfsmanna skólans. Afsláttinn má nálgast með því að fá þar til gerð afsláttarkort hjá annað hvort Þorvaldi Hjaltasyni valdih@bifrost.is eða hjá Jóhannesi Má johannes@bifrost.is Kortin veita 50% afslátt af vallargjöldum en gilda ekki um aðild að golfklúbbnum sjálfum.

Meðal viðburða á golfvellinum í sumar má nefna að laugardaginn 11. ágúst nk. standa Hollvinasamtök Bifrastar fyrir golfmóti sem ætlað er öllum félagsmönnum Hollvinasamtakanna.

Frekari upplýsingar um starfsemi golfklúbbsins Glanna má finna á heimasíðu hans: http://golf.is/pages/klubbasidur/golfklubburinnglanni/

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri