Fréttir
13. júní 2007

Arna Kristín Einarsdóttir ráðin tónleikastjóri sinfóníunnar

Arna Kristín Einarsdóttir
Arna, sem lauk meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst fyrr á þessu ári,  telur nám sitt eina helstu ástæðu þess að hún hlaut starf tónleikastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. 

 Starf tónleikastjóra felst meðal annars í að skipuleggja allt tónleikahald hljómsveitarinnar, sjá um samskipti við umboðsskrifstofur og listamenn, skipuleggja tónleikaferðir hljómsveitarinnar og hann er staðgengill framkvæmdastjóra í fjarveru hans.  Arna segir að í náminu á Bifröst hafi hún fengið tækifæri til að dýpka skilning sinn á öllu því sem viðkemur menningarrekstri, hvort sem það var markaðssetning, verkefnastjórnun, mannauðs- eða rekstrarstjórnun. Hún nýtti meistararitgerðina til að kynna sér bakgrunn Sinfóníuhljómsveitar Íslands og skoða með hvaða hætti hún gæti sem best undirbúið sig fyrir flutning í nýtt tónlistarhús. Hún segist hlakka til að fá nú tækifæri til að vera þátttakandi í því ferli.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri