13. júní 2007
Málsvarnir fjarnema
 |
| Viðveruhópinn skipa Fjóla Kristinsdóttir, Ásdís Viðarsdóttir, Svandís Ragnarsdóttir og Kristjana Kristjánsdóttir |
Málsvarnir misserishópa sem stunda fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst standa nú yfir. Alls eru það þrettán hópar sem flytja mál sitt nú í vikunni. Málsvarnir fela í sér kynningu og umræður um svokölluð misserisverkefni. Kennarahópur leggur spurningar fyrir misserishóp og kannar þekkingu hans og efnistök. Annar hópur nemenda, oftast kallaður viðveruhópur, hefur kynnt sér viðkomandi verkefni og undirbúið spurningar til misserishóps. Málsvarnir eru yfirleitt opnar, nema þegar um trúnaðarverkefni er að ræða, og gefst áheyrendum jafnframt tækifæri til að leggja fram spurningar.
Misserisverkefni eru sjálfstæð hópverkefni sem reyna á mun fleiri þætti en venjuleg vikuleg verkefni. Gert er ráð fyrir að hvert misserisverkefni krefjist þriggja vikna vinnu nemenda. Fyrstu tvær vikurnar fara í vinnslu verkefnisins en sú þriðja í málsvarnir og endurbætur.
Tilgangur misserisverkefna er margþættur. Þau veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og öðlast þannig meiri sérfræðiþekkingu en ella. Oft eru misserisverkefni unnin í nánum tengslum við fyrirtæki og stofnanir og veita þannig innsýn í viðfangsefni og vandamál atvinnulífsins. Þau undirstrika hvernig hægt er að nota námsefnið til grundvallar við að skoða, skýra og koma með ábendingar eða tillögur til úrbóta. Þau gefa kost á að læra af aðstæðum og aðilum í atvinnulífinu og dýpka skilning á námsefninu. Síðast en ekki síst gegna misserisverkefnin mikilvægu hlutverki við að þjálfa nemendur í að beita viðurkenndum vísindalegum aðferðum við rannsókn eða lausn hagnýtra og fræðilegra viðfangsefna.
Myndirnar eru teknar á málsvörn sem fram fór í Kringlunni þann 12. júní. Misserishópinn skipuðu þau Anna María Sigurðardóttir, Björn Magnússon, Gissur Örn Hákonarson , Kristín Hanna Ásbjörnsdóttir, Ólafur Ragnar Tómasson og Sigríður Lovísa Birgisdóttir og var umfjöllunarefnið fæðingarorlof. Málshefjandi af hálfu kennara var Guðmundur Ólafsson, lektor og viðverandi Stefán Kalmansson, aðjúnkt. Kristín Ólafsdóttir annaðist fundarstjórn en eins og þeir sem til þekkja vita þá eru málsvarnir ákaflega formlegir viðburðir og embætti fundarstjóra hið virðulegasta.