12. júní 2007
Bifrestingar njóta sólarinnar
 |
| Spriklað í sólinni á Bifröst |
Margir leggja hönd á plóg þessa dagana við að fegra og prýða umhverfið í háskólaþorpinu á Bifröst. Skólinn hefur ráðið nokkur ungmenni til starfa við garðyrkju og önnur tilfallandi störf. Gangstígar hafa verið endurbættir og nýir lagðir og aðkoma að byggingum skólans bætt.
Fjölmargir nemendur eru enn í fullu námi á sumarönn. Þeir nota líkamsræktarsalinn mikið og gjarnan er boðið upp á hóptíma þar í hádeginu. Á myndinni má sjá einn hópinn sameina leikfimina og sóldýrkun enda ekki annað hægt í blíðunni í gær. Í baksýn má svo sjá krakkana taka til hendinni í garðyrkjunni.