Fréttir
9. júní 2007

Brautskráning stúdenta

Útskriftarhópur frumgreinadeildar ásamt Ágústi Einarssyni rektor og Guðrúnu Björgu Aðalsteinsdóttur umsjónarmanni deildarinnar
Brautskráning stúdenta frá Háskólanum á Bifröst fór fram í dag við hátíðlega athöfn. 35 nemendur luku BS prófi, 3 meistaraprófi, einn post graduate diploma úr viðskiptadeild og 14 diplómaprófi í fjármálum og stjórnun. Þá luku 50 nemendur prófum úr frumgreinadeild.

2 nemendur, Signý Óskarsdóttir og Hjálmar Elíeserson, luku BA prófi frá félagsvísindadeild í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði, HHS. Þau eru fyrstu nemendurnir til að ljúka slíku prófi hér á landi en kennsla í HHS hófst á Bifröst haustið 2005. Námið, sem  byggt er upp að breskri fyrirmynd,  hefur rutt sér til rúms í fleiri löndum á undanförnum árum. HHS er undirstöðugott og fjölbreytt nám og nýtist bæði sem gott vegarnesti að margvíslegum störfum í samfélaginu og sem heppilegt grunnnám fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám á sviði hug- og félagsvísinda.

Í máli dr. Ágústs Einarssonar rektors kom m.a. fram  að Menntasjóður Kaupþings banka hefði ákveðið að styrkja Háskólann á Bifröst um 30 milljónir króna. Helming fjárins á að nota til að standa straum af kostnaði við námskeið í meistaranámi í alþjóðlegum banka- og fjármálafræðum og hinn helminginn til að ráða erlenda kennara og til rannsókna, útgáfu og ráðstefnuhalds. Dr. Ágúst lýsti mikilli ánægju sinni og þakklæti fyrir höfðinglegt framlag Kaupþings banka. Hann sagði jafnframt mikilvægt að hin öflugu fyrirtæki í landinu styrktu skólana með svipuðum hætti því engin yrði útrásin og léleg lífskjörin ef ekki væru til góðir skólar þar sem framsækið og duglegt fólk sækir sér menntun.

Að vanda voru þeir nemendur heiðraðir sem náðu framúrskarandi árangri. Verðlaun þeirra sem enn eru í námi felast í því að þeir fá felld niður skólagjöld á næstu önn. Í félagsvísindadeild hlutu verðlaunin þeir Guðmundur Ágúst Sæmundsson sem fær skólagjöldin felld niður að fullu og Pálmar Þorsteinsson og Þór Gíslason sem fá 75% afslátt af skólagjöldum. Í viðskiptadeild fær Benedikt Helgason skólagjöld felld að fullu niður, Haukur Skúlason fær 75% afslátt og þau Brynjar Þór Þorsteinsson og Hafdís Anna Bragadóttir fá 50% afslátt af skólagjöldum en þau deildu með sér þriðja sæti. Í lagadeild fær Vilmar Freyr Sævarsson skólagjöldin felld niður, Börkur Ingi Jónsson fær 75% afslátt og þeir Magnús R. Kristjánsson og Indriði Kristjánsson fá 50% afslátt af skólagjöldum en þeir voru jafnir í þriðja sæti. Bókaverðlaun fyrir hæstu einkunn á lokaprófi í einstökum deildum hlutu Hjálmar Elíeserson í félagsvísindadeild, Halldór Örn Þorsteinsson í viðskiptadeild, Árni Gísli Árnason í lagadeild og Sæmundur Rúnar Þórisson í meistaranámi. Þá hlaut Jóhannes Geir Sigurgeirsson verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í post graduate diploma námi í viðskiptadeild og Kristín Atladóttir fyrir bestu meistararitgerðina. Árni Sverrir Hafsteinsson, Friðrik Páll Sigurðsson og Ingvar Christiansen náðu bestum árangri í frumgreinadeild, Árni Sverrir fær skólagjöld felld niður á næstu önn og þeir Friðrik og Ingvar tilheyrandi afslátt. Samband íslenskra samvinnufélaga og VÍS veittu peningaverðlaun; SÍS Halldóri Erni Þorsteinssyni fyrir hæstu einkunn á lokaprófi og VÍS Árna Gísla Árnasyni fyrir hæstu einkunn á lokaprófi í lagadeild.  

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri