 |
| Hrafnseyri í dag |
Hátíðarþingið ber yfirskriftina Þjóð og hnattvæðing og eru nokkrir af virtustu fræðimönnum heims á þessu sviði væntanlegir til Hrafnseyrar til að fjalla um þetta áhugaverða málefni.
Meðal íslenskra fyrirlesara eru Auðunn Arnórsson, blaðamaður og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Frá Háskólanum á Bifröst koma þeir Eiríkur Bergmann Einarsson og Birgir Hermannsson. Fyrirlestur Eiríks ber yfirskriftina: Why does Iceland accept real transfer of decision making to Brussels through the EEA but not full membership in the EU? Birgir kallar sinn fyrirlestur: An everlasting battle.
Erlendu fyrirlesararnir eru Lene Hansen, Liah Greenfeld og Ole Wæver. Lene Hansen er dósent í alþjóðasamskiptum við stjórnmálafræðideild Háskólans í Kaupmannahöfn. Liah Greenfeld er prófessor í stjórnmálafræði við Boston University en hún hefur stundað fræðistörf og kennt við marga virtustu háskóla heims, m.a. Harvard Háskóla. Ole Wæver er prófessor við stjórnmálafræðideild Háskólans í Kaupmannahöfn.
Eins og sjá má er hér um að ræða einstakt tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á alþjóðamálum, Evrópumálum, hnattvæðingunni og þjóðernishyggju, að koma og hlusta á nokkra helstu fræðimenn heimsins á þessu sviði.
Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar, er að sjálfsögðu mjög viðeigandi staðsetning fyrir þing sem þetta. Fólk er hvatt til þess að nýta þetta frábæra tækifæri, skoða þennan sögufræða stað í leiðinni og taka um leið þátt í 17. júní hátíðarhöldum.
Þingið hefst kl. 9 á laugardagsmorguninn 16. júní og stendur frameftir degi. Dagskráin hefst síðan aftur kl. 10 þann 17. júní og stendur til hádegis. Eftir hádegi tekur svo við hátíðardagskrá í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga þar sem Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, flytur hátíðarræðu dagsins.
Nánari upplýsingar um dagskrá, fyrirlesara og efni fyrirlestra er að finna á vef Háskólaseturs Vestfjarða, www.hsvest.is og á www.hrafnseyri.is
Málþingið fer fram á ensku.