Fréttir
8. júní 2007

Útibú Háskólans á Bifröst opnað á Egilsstöðum

Frá opnuninni; Hulda Ingibjörg fyrir miðri mynd.
Þann 7. júní síðastliðinn var formlega opnað útibú Háskólans á Bifröst í Vonarlandi á Egilsstöðum. Af hálfu skólans sátu þar fyrir svörum þær Rebekka Rán Samper markaðsstjóri, Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir verkefnastjóri símenntunar og Ingunn Þóra Jóhannesdóttir. Að sögn Rebekku Ránar mætti nokkur fjöldi fólks á opnunina til að kynna sér starfsemina og spyrjast fyrir um nám við Háskólann á Bifröst. Útibúið á Egilsstöðum er fyrsta skrefið í átt til þess að færa starfsemi skólans víðar um land og með tilkomu þess verður auðveldara en áður fyrir Austfirðinga að kynna sér starfsemi skólans og stunda nám við hann. Þar verða veittar upplýsingar um nám og kennslu á Bifröst og er þessi þjónusta jafnt ætluð nýjum nemendum sem og þeim sem eru þegar í námi.

Nú stunda á annað hundrað manns fjarnám til BS gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst auk þess sem fimm af sex námsleiðum í meistaranámi eru kenndar í blöndu af fjar- og staðnámi.  Þá er í símenntunardeild skólans boðið upp tvö námskeið í fjarnámi:  Mátt kvenna sem er  þriggja mánaða nám fyrir konur; einkum þær sem huga á sjálfstæðan atvinnurekstur og diplómanám í verslunarstjórnun. Haustið 2007 verður í fyrsta sinn boðið upp á fjarnám við frumgreinadeild skólans og hefur sú nýbreytni vakið mikla athygli og fjöldi umsókna borist.

Stefanía G. Kristinsdóttir verkefnastjóri Þróunarfélags Austurlands veitir útibúinu forstöðu og það verður opið alla fimmtudaga frá kl. 15.00 - 17.00.

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri