8. júní 2007
60 ára útskriftarnemar í heimsókn
 |
| Á myndinni eru auk Ágústs Einarssonar, rektors, þau Einar Hannesson, Erlingur Hansson, Guðmundur Jón Benediktsson, Sigríður Þ. Kristjánsdóttir og Valborg Sigurðardóttir. |
Talsvert er um það að fyrrverandi nemendur heimsæki gamla skólann sinn á Bifröst til að kynna sér þær breytingar sem orðið hafa og rifja upp gamlar minningar. Þórir Páll Guðjónsson er tengilliður skólans við útskrifaða Bifrestinga og hefur hann jafnan veg og vanda af slíkum heimsóknum. Þann 6. júní síðastliðinn heimsóttu skólann 5 nemendur sem útskrifuðust úr Samvinnuskólanum í Reykjavík vorið 1947 og eiga því 60 ára útskriftarafmæli á þessu ári.
Ágúst Einarsson rektor og Þórir Páll Guðjónsson tóku á móti hópnum í Kringlunni þar sem gestirnir þáðu kaffi og kökur.
Ágúst bauð gestina velkomna og sagði í stuttu máli frá starfsemi skólans í dag. Erlingur Hansson hafði orð fyrir gestunum og afhenti rektor skólaspjald af hópnum sem útskrifaðist vorið 1947 en það ár hafði 61 nemandi útskrifast frá skólanum.
Að lokum var farin stutt skoðunarferð um skólann og lauk heimsókninni með myndatöku á tröppum gamla skólahússins.