6. júní 2007
Kennarar og kokkur óskast að leikskólanum Hraunborg
 |
| Góðir strákar í göngutúr |
Leikskólinn Hraunborg er rekinn af Hjallastefnunni og er hann staðsettur í háskólaþorpinu. Síðastliðinn vetur voru 80 börn á aldrinum eins til sex ára í skólanum í kynja- og aldursskiptum kjörnum.
Leiðarljósið í Hjallastefnustarfi er jákvæður agi, jafnrétti, kærleikur og sköpun.
Í haust vantar áhugasama kennara sem vilja vinna með afskaplega skemmtilegum börnum í Hraunborg. Einnig vantar hugmyndaríkan og duglegan kokk til að næra kraftmikila kroppa.
Þeir starfsmenn sem koma langt að til vinnu fá greiddan bílastyrk til að koma til móts við kostnað.
Á heimasíðu Hraunborgar - http://www.hjalli.is/hraunborg/ - er að finna ýmsan fróðleik um skólann og að auki umsóknareyðublöð fyrir þá sem hafa hug á að sækja um starf.
Allar upplýsingar gefur Anna María Sverrisdóttir leikskólastjóri í símum 6935303 eða 4530077. Einnig má senda póst á annamaria@hjalli.is eða hraunborg@hjalli.is