Fréttir
5. júní 2007

Sandra Schulberg talar um kvikmyndir og Marshall aðstoðina

 Sandra Schulbert hefur um árabil unnið við kvikmyndir og sjónvarp vestanhafs og í Evrópu og framleitt fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun innan alþjóðlega kvikmyndaiðnaðarins.

Sandra Schulberg

Á síðari árum hefur hún  einkum beint kröftum sínum að vinnu við heimildarmyndir sem gerðar voru um og fyrir Marshall aðstoðina á sínum tíma. Hún hefur tekið þær saman í yfirlitsverk og sýnt víða um heim undir titlinum: Selling Democracy: Films of the Marshall Plan 1948 - 1953.

Marshall áætlunin var eins og kunnugt er skipulögð af bandaríska utanríkisráðuneytinu á árunum eftir seinni heimstyrjöldina (1948 - 1953) í því skyni að stuðla að efnahagslegum uppgangi í löndum Evrópu og aukinni samvinnu þeirra á milli. Meðal þeirra sem unnu að hinum upprunalegu myndum sem gerðar voru fyrir herstjórn Bandaríkjamanna í Þýskalandi var faðir Söndru, kvikmyndagerðarmaðurinn Stuart Schulberg.

Snæfríður Baldvinsdóttir stýrir umræðum að loknum fyrirlestri Söndru. Hann hefst klukkan 9:45 í Hriflu og er öllum opinn.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri