Fréttir
1. júní 2007

Háskólinn á Bifröst setur upp útibú á Austurlandi

Háskólinn á Bifröst býður upp á öflugt fjarnám sem hefur gert fólki um land allt kleift að stunda nám með vinnu.

Í útibúinu á Egilstöðum verða veittar upplýsingar um nám og kennslu við Háskólann á Bifröst og er þessi þjónusta jafnt ætluð nýjum nemendum sem og þeim sem eru þegar í námi.

Nú stunda á annað hundrað manns fjarnám til BS gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst auk þess sem fimm af sex námsleiðum í meistaranámi eru kenndar í blöndu af fjar- og staðnámi.  Þá er í símenntunardeild skólans boðið upp tvö námskeið í fjarnámi:  Mátt kvenna sem er  þriggja mánaða nám fyrir konur; einkum þær sem huga á sjálfstæðan atvinnurekstur og diplómanám í verslunarstjórnun. Haustið 2007 verður í fyrsta sinn boðið upp á fjarnám við frumgreinadeild skólans og hefur sú nýbreytni vakið mikla athygli og fjöldi umsókna borist.

Í  fjarnámi við Háskólann á Bifröst mæta nemendur tvisvar á misseri á svokallaðar vinnuhelgar þar sem nemendum og kennurum gefst færi á að kynnast og mynda tengsl. Þar fyrir utan fer kennsla fram í gegnum svokallaðan námskjá sem er rafrænt námsumhverfi nemenda og kennara Háskólans á Bifröst.  Kennarar setja námsefni inn á námskjá, þeir leggja þar fram ítarefni og verkefni og skila þeim og veita endurgjöf í gegnum hann. Þar má finna ýmsar upplýsingar á borð við kennsluáætlanir og tilkynningar ýmiss konar, spjallþræði í einstaka námsgreinum o.fl. Námsumhverfið sem boðið er upp á með námskjánum hefur almennt hlotið lof bæði kennara og nemenda.

 Umsóknarfrestur um nám við Háskólann á Bifröst rennur út þann 10. júní næstkomandi.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri