30. apríl 2007
Af hverju sækja kjörnir sveitarstjórnarmenn meira í bæjarstjórastólana en áður?
Mánudaginn 23. apríl gengust Félag stjórnsýslufræðinga og Samband sveitarfélaga fyrir málþingi í Reykjavík og bar það yfirskriftina Skil milli stjórnsýslu og stjórnmála á sveitarstjórnarstigi. Á málþinginu flutti dr. Grétar Þór Eyþórsson, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst erindi sem bar yfirskriftina Nýskipan í opinberum rekstri og breytt hlutverk sveitarstjórnarmanna.
Hann fjallaði um hvernig breyttar áherslur í rekstri sveitarfélaga hafi breytt hlutverki hins kjörna fulltrúa og gert það valdaminna en áður. Hann velti fyrir sér hvort þarna gæti verið að finna mögulegar skýringar á því hvers vegna kjörnir fulltrúar legðu meiri áherslu en áður á að setjast í bæjarstjórastólana og á því hvers vegna svo margir hætta í sveitarstjórnarmálum, að því er virðist í miðju kafi. Erindi Grétars er að finna á heimasíðu Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst.