30. apríl 2007
Nýtt rit um launamun kynjanna
Nýlega kom út rit framkvæmdastjórnar ESB sem ber heitið Gender pay gap _ Origins and policy responses. Ritið er samið af sérfræðingahópi ESB á sviði atvinnu-, jafnréttis- og félagsmála en hópurinn samanstendur af hagfræðingum, félagsfræðingum og viðskiptafræðingum. Þetta rit er ekki samið af sérfræðingahópi ESB á sviði jafnréttislaga eins og skilja mátti af frétt á heimasíðu skólans og er beðist velvirðingar á því.
Dr. Lilja Mósesdóttir, prófessor er meðhöfundur ritsins um launamun kynjanna en hún hefur tekið þátt í störfum sérfræðingahópsins frá 1997. Sérfræðingahópurinn á sviði atvinnu-, jafnréttis- og félagsmála gerir árlega úttektir fyrir framkvæmdastjórn ESB í aðildarlöndum Evrópska Efnahagssvæðisins. Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út fleiri rit sem unnin hafa verið á vegum hópsins á undanförnum árum en frekari upplýsingar er að finna heimasíðu framkvæmdastjórnar ESB. http://ec.europa.eu/employment_social/emplweb/gender_equality/publications_en.cfm