Mánudaginn 23. apríl stóðu Félag stjórnsýslufræðinga og Samband sveitarfélaga fyrir málþingi í Reykjavík og bar það yfirskriftina Skil milli stjórnsýslu og stjórnmála á sveitarstjórnarstigi. Á málþinginu flutti dr. Grétar Þór Eyþórsson erindi sem hann kallaði Nýskipan í opinberum rekstri og breytt hlutverk sveitarstjórnarmanna.
Grétar fjallaði um hvernig nýjar áherslur í rekstri sveitarfélaga hafi breytt hlutverki hins kjörna fulltrúa og gert það valdaminna en áður. Hann velti fyrir sér hvort þarna gæti verið að finna mögulegar skýringar á því af hverju kjörnir fulltrúar legðu meiri áherslu en áður á að setjast í bæjarstjórastólana og á því af hverju svo margir hætta þátttöku í sveitarstjórnarmálum, að því er virðist í miðju kafi. Nánari upplýsingar og glærur úr erindi Grétars er að finna á heimasíðu Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst.