24. apríl 2007
Háskólinn á Bifröst tekur þátt í verkefni um vottun á jafnlaunastefnu í fyrirtækjum
 |
| Elín Blöndal forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála |
Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála er þátttakandi í verkefni þriggja háskóla, Háskólans á Bifröst, HR og HÍ um vottun á jafnlaunastefnu í fyrirtækjum, samkvæmt tillögum nefndar félagsmálaráðherra sem kynntar voru nýlega.
Verkefnið er frumkvöðlastarf á sér ekki fyrirmynd í öðrum löndum. Félagsmálaráðuneytið, fjármálaráðuneytið og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið munu ásamt framangreindum háskólum og Samtökum atvinnulífsins koma verkefninu á fót. Fjöldi fyrirtækja og stofnana hefur þegar óskað eftir að verða meðal þeirra fyrstu í vottunarferlinu, m.a. Deloitte á Íslandi, Íslandspóstur, Háskólinn á Bifröst, Orkuveitan, Háskólinn í Reykjavík, Landsvirkjun og Landsnet.
Verkefnið verður nánar kynnt á næstunni, en frekari upplýsingar um það er að finna á vef félagsmálaráðuneytisins, þar á meðal tillögur nefndar ráðherra um jafnlaunastefnu í fyrirtækjum. Stefnt er að því að jafnlaunavottun verði einn af þeim þáttum sem mynda svonefnda „Jafnréttiskennitölu“sem er sérstakt verkefni unnið á vettvangi Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála.