Dr. Grétar Þór Eyþórsson, Vífill Karlsson, Eva Heiða Önnudóttir og Kolfinna Jóhannesdóttir, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst, flytja erindi á ráðstefnu um íslenska þjóðfélagsfræði sem haldin verður í Háskólanum á Akureyri dagana 27. - 28. apríl nk.
Erindi Grétars Þórs Eyþórssonar, Vífils Karlssonar og Evu Heiðu Önnudóttur ber yfirskriftina, Hvaða búsetuskilyrðum sækist fólk eftir utan Reykjavíkur? Könnun meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins. Erindi Kolfinnu Jóhannesdóttur ber yfirskriftina, Hlutverk háskóla í þróun samfélags, svæðisbundin áhrif Háskólans á Bifröst. Erindin eru á dagskrá laugardaginn 28. apríl á málstofu um byggðaþróun á Íslandi. Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á heimasíðu Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst.