Þriðjudaginn 24. apríl næstkomandi munu nemendur og kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar koma fram á tónleikum í Hriflu. Tónleikarnir hefjast klukkan fimm og eru hluti af tónleikaröð Háskólans á Bifröst á þessu vori. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Næstu tónleikar í háskólanum eru fyrirhugaðir þann 22. maí næstkomandi en þá kemur fram fjölþjóðlegur saxófónkvartett.