22. apríl 2007
Hvers vegna eru Íslendingar tregir í taumi í alþjóðlegri samvinnu?
Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, heldur opinn fyrirlestur á vegum Félags stjórnmálafræðinga fimmtudaginn 26. apríl kl 12.15 í Þjóðminjasafninu.
Eiríkur Bergmann fjallar um áhrif fjölþjóðlegs samstarfs á fullveldið og lýðræðisþróun á Íslandi. Erindið er byggt á nýútkominni bók Eiríks, Opið land - staða Íslands í samfélagi þjóðanna. Í bókinni eru tengsl Íslands við umheiminn skoðuð út frá víðu sjónarhorni. Fjallað er um meginþræði í utanríkisstefnu Íslands, meðal annars um tengslin yfir Atlantshafið og stöðu Íslands í Evrópusamrunanum. Einnig er rætt um afstöðuna til hnattvæðingar, innflytjenda, búfjötra og stöðu tungunnar svo nokkur svið samfélagsins séu nefnd.
Pallborð og umræður
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, MA í hugmyndasögu og heimspeki
Helgi Hjörvar, alþingismaður
Birgir Ármannsson, alþingismaður
f.h. Félags stjórnmálafræðinga
Einar Mar Þórðarson
formaður